Gvendolina segir sögu

Thursday, February 01, 2007

Sæl verið þið lesendur og aðrir villuráfandi vitleysingar!!

Ég er farin að halda að ég klæði mig í of litrík föt...nemendur mínir höfðu það að orði að ég væri alveg eins og trúður í dag...það vantaði víst bara rauða nefið...ég sem var nú bara að reyna að vera soldið sumarleg í svartasta skammdeginu......

Það stendur mikið til í febrúar...fyrst ber að nefna sumarbústaðaferð með vinahópnum sem verður eins yndisleg og alltaf :)
Einnig ætla ég að leggja land undir fót og skella mér til Akureyri sem verður notla geggjað mikið fjör :)

Skemmtilegt að segja frá því að nemendur mínir áttu 100 skóladaginn sinn í dag....ég óska þeim að sjálfsögðu til hamingju með það er

Jámm það er ekki hægt að segja að maður láti sér leiðast....

Sæl verið þið lesendur og aðrir villuráfandi vitleysingar!!

Ég er farin að halda að ég klæði mig í of litrík föt...nemendur mínir höfðu það að orði að ég væri alveg eins og trúður í dag...það vantaði víst bara rauða nefið...ég sem var nú bara að reyna að vera soldið sumarleg í svartasta skammdeginu......

Það stendur mikið til í febrúar...fyrst ber að nefna sumarbústaðaferð með vinahópnum sem verður eins yndisleg og alltaf :)
Einnig ætla ég að leggja land undir fót og skella mér til Akureyri sem verður notla geggjað mikið fjör :)

Skemmtilegt að segja frá því að nemendur mínir áttu 100 skóladaginn sinn í dag....ég óska þeim að sjálfsögðu til hamingju með það er

Jámm það er ekki hægt að segja að maður láti sér leiðast....

Sunday, January 28, 2007

Sæl verið þið Stefán og aðrir Sálarmeðlimir..

Jámm Sálarballsgeðveikin er hafin aftur á nýju ári....maður ætti nú að geta náð ansi mörgum böllum frá jan til des heheh

Skemmtilegt að segja frá því að það var dótadagur í kennslunni um daginn og máttu nemendur þá koma með sín uppáhaldsleikföng í skólann....nokkrar stúlkur mættu með barbie eða svipaðar dúkkur...og fóru að leika með þær í leiktímanum...að heyra í þeim leika fékk mig til að rifja upp hinar gullnu barbí stundir....


minns fór í heimsókn til þinns, þinns var að fara á ball, minns átti þetta og þinns átti hitt............ótrúlega fyndið þetta minns og þinns tal :)

Við vinkonurnar eyddum ansi miklum tíma í barbíleik á okkar yngri árum...stundum vorum við dögum og jafnvel vikum saman í sama leiknum og voru þá jafnvel ungu barbí-skvísurnar frá fyrsta degi orðnar ömmmur á þeim síðasta :) Það vantaði heldur ekki sápuóperudramað í þessa leiki okkar og þar sem oft var aðeins til einn barbí-kall gátu hlutirnir oft orðið ansi flóknir..sérstaklega eftir því sem við urðum eldri og áttuðum okkur betur á því hvernig börnin verða til og soleiðis... ....já það var mikið um sjálfstæðar einhleypar mæður sem áttu falleg föt og lifðu svokölluðu paradísarlífi....einnig redduðum við okkur með því að láta kallana vera sjómenn eða flugmenn sem voru mikið frá vegna vinnu...mér fannst/finnst þetta alveg yndislegur leikur og get nú ekki sagt að hið óeðlilega útlit barbídúkkunar hafi skemmt mína sjálfsmynd eða brenglað ímynd mína á kvennfólki yfir höfuð....það þyrfti nú örugglega ekki mikið að gera til að sannfæra mig um að koma í barbí...


en allavega elskið friðinn og strjúkið kviðinn...

Wednesday, January 24, 2007

Sæl verið þið kennarar og annað merkilegt fólk.......

Úfff eftir suma kennsludaga líður manni pínu eins og gömlum úlfalda sem er haltur á öðrum fæti og blindur á öðru auga, sem ráfar um eyðimörkina í leit að vatni til að hressa sig við án árangurs og ekki nóg með það heldur í staðin rekst hann á gamlan gírafa sem hrjáist af þunglyndi og of háum blóðþrýsting sem lifir fyrir það að segja öðrum frá eymd sinni.....

en annars er ég bara hress...

elskið friðinn og strjúkið kviðinn

Sunday, January 21, 2007

Sæl verið þið afmælisbörn og aðrir viðskiptafræðingar...

Ég vil byrja að óska Huldu minni og Þöllinni til lukku með afmælið en þær áttu báðar afmæli síðasta mánudag....Sigrún hélt að því tilefni svaka teiti þar sem ótrúlegasta fólk lét sjá sig svo sem Elín Hirst, Sally Spectra, Ómar, Borat, Gyða Sól, Bogi og Örvar og margir fleiri vitleysingar :)

Síðan vil ég óska henni Heiðdísi skvís til lukku með áfangann en stúlkan var að útskrifast sem viðskiptafræðingur í gær...að sjálfsögðuu var einnig blásið til veislu þar á bæ.. sem endaði með ostakasti að hætti Iðunnar :) Skelltum við okkur nokkur saman út að borða á Carruso fyrir teitið þar sem við fengum alveg rosalega góðan mat og frábæra þjónustu...þar var alveg endalaust hlegið og gleðin var við völd :) heheheh

En að öðru...

Við og við kemur alltaf upp sú umræða í bekknum mínum hvort ég sé nú stelpa eða kona.....nú í vikunni fór sú umræða aftur á stað og krakkarnir voru nú mikið að velta þessu fyrir sér.....þá heyrist í einum...... ER MAMMA ÞÍN KRUMPUÐ Í FRAMAN???? ég var nú voða hissa á þessari spurningu en neitaði að svo væri..... komust þau þá að þeirri niðurstöðu að þar sem móðir mín er ekki krumpuð í framan þá hlýt ég að vera stelpa....
Algjörir snillingar :)
en allavega elskið friðinn og strjúkið kviðinn...

Sunday, January 14, 2007

Sæl verið þið fótboltabullur og aðrir nördar....
Jámmm ég veit ég ætlaði að reyna að vera duglegri að skrifa oftar inn færslu !!!!!
En allavega....hvað finnst ykkur um að David Beckham sé að fara til Bandaríkjana til að spila fótbolta...nú hef ég ekki neitt rosalegt vit á þessu en miðað við þá litlu umfjöllin sem Bandaríkjamenn hafa fengið fyrir karla knattspyrnuna þá getur hún nú ekki verið á einhverju gæðastalli eða hvað???? Er þetta nógu mikil ögrun fyrir kauða??????
Svo er hérna smá sem ég rakst á og vildi sýna ykkur ;) Mér finnst þetta allavega soldið sniðugt :)
HVERNIG Á AÐ FARA Í STURTU EINS OG KONA
Farðu úr fötunum og raðaðu þeim í flokkaðar "óhreina-taus-körfur" Ein fyrir ljósan þvott, ein fyrir dökkan, ein fyrir hvítan, og ein fyrir sérstaklega viðkvæm efni.Gakktu í átt að baðherberginu í síðum slopp. Ef að húsbóndinn sér til þín á leiðinni, mundu þá að hylja allt nakið hold og flýta þér inná baðherbergið.Horfðu á sjálfan þig í speglinum, ýttu maganum fram og kvartaðu í smástund við sjálfa þig yfir því hvað þú ert að verða feit. Stígðu inn í sturtuna.Athugaðu hvort að eftirfarandi sé ekki örugglega við hendina:Andlits-þvottapokinn, handarkrika-þvottapokinn, fyrir-neðan-mitti-þvottapokinn, grófi nudd-þvottapokinn og siðast en ekki síst .. appelsínu-húðar-nudd-steinninn.Þvoðu hárið einu sinni með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið.Þvoðu hárið aftur með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið.Notaðu Agúrgku/Ginseng næringuna .. þessari með viðbættu Burkna-olíunni og láttu standa í hárinu í 15 mínútur.Þvoðu þér í framan með Aprikósu-skröbbinu í tíu mínútur .. eða sirka þangað til þig fer að svíða verulega.Þvoðu restina af líkamanum með Ginger/Jaffa-Cake líkams-sápunni. Skolaðu næringuna úr hárinu í sirka 15 mínútur .. svo að örugglega öll afgangs næring hreinsist í burtu.Ef að húsbóndinn sturtar niður, sem leiðir til þess að vatnið hjá þér hitnar í smástund, skaltu öskra brjálæðislega og kalla hann öllum illum nöfnum.Skúfaðu fyrir sturtuna. Þurrkaðu upp alla bleytu í sturtunni. Notaðu Ajax sturtu sprey til að ná upp háglans á flísarnar. Ekki gleyma að athuga gólfið fyrir framan sturtuna og þurrka upp hvern einasta dropa.Farðu úr sturtunni. Þurrkaðu þig með handklæði sem er á stærð við lítið Afríku ríki.Pakkaðu hárinu inn í annað, extra rakadrægt, handklæði. Skoðaðu allan líkamann í leit að minnsta blett eða hári. Notaðu neglur eða flísatöng til að gera út af við það sem þú finnur.Gakktu í átt að svefnherberginu í síðum slopp með handklæðið ennþá á höfðinu. Myndu að hylja allt nakið hold .. ef að húsbóndinn er nálægt.. og flýttu þér í átt að svefnherberginu. Ekki eyða undir hálftíma í að klæða þig.
AÐ FARA Í STURTU EINS OG KARLMAÐUR
Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu, og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið. Gakktu nakinn í átt að baðherberginu. Ef að konan sér þig á leiðinni, hristu þá "vininn" í áttina að henni og segðu "Vúúííí". Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt inn andann til að athuga hvort þú sért með "sixpakk" (sem þú ert ekki með.)Horfðu með aðdáun á stærðina á "félaganum", gríptu um hann og segðu "Jú vonna pís of ðis beibí".Farðu í sturtuna. Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka ? ekki nota hann ef þú rekst á hann.Þvoðu þér í framan, undir höndum og "vöðvann". Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu. Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu. Búði til móíkana-kamp með sjampóið í hárinu. Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tíhíhíhíhí).Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu). Skolaðu þig og farðu úr sturtunni. Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til af því að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn.)Þurrkaðu þér lauslega. Horfðu á sjálfan þig í speglinum. Taktu nokkrar "pósur" og horfðu með aðdáun á stærðina á "jókernum" (aftur).Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva inná baði. Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið. Ef að þú rekst á konuna, dragðu þá handklæðið frá, gríptu um "gosann", taktu eina Elvis-sveiflu og segðu "Sssjabúmm".Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær. Taktu sundur sokkaparið á gólfinu. Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá. Farðu í nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og þú notaðir í gær.
Hehehe soldið skondið...
en allavega elskið friðinn og strjúkið kviðinn..

Monday, January 08, 2007

Sæl verið þið Takkartáhugamenn og aðrir borgarbúar!!!!!

Úff púff hvað það er kalt úti.......mæ tós ar frísing....en allavega þar sem ég hef ekki verið að fara nógu vel eftir áramótarheitunum og ekki verið að fylgjast neitt með hef ég ekki frá miklu að segja...úff hvað er málið ég hef hreinlega ekki frá neinu að segja...nema ég hlakka til að sjá nýja þáttinn Heros..missi reyndar af honum í kveld en ætla að sjá endursýninguna í vikunni....

Annars skemmtilegt sem 5 ára frænka mín sagði við mig um daginn.....

Frænka: Amma getur ekki farið til útlanda
Sigrún: Nú afhverju ekki???
Frænka: Hún á ekki bíl
Sigrún: Já en maður fer nú í flugvél til útlanda.....
Frænka: Já ég veit en hún kemst ekki út á flugvöll

heheh soldið fyndnar pælingar hjá þessum krílum :)

en allavega elskið friðinn og strjúkið kviðinn....

Sunday, January 07, 2007

Sæl verið þið lesendur og aðrir ráðviltir netverjar!!!!!!!!

Hvernig dýr er mörður????????
Það kom nefnilega fram í einni frétt sem ég las að París Hilton sefur bara með dýrin sín upp í rúmi en ekki karlmönnum...hún á víst fullt af dýrum þar á meðal mörð.....já segið þið svo að ég fylgist ekki með.......


Jæja jólin eru barasta búin....það er spurning hvort maður nennir að fara týna saman jóladótið....ég þarf allavega að henda jólatrésgreyinu út.....ég held að dauðari (segir maður dauðari????) jólatré sé ekki hægt að finna og það er sko búið að vera það síðan á annan í jólum....

já en hvað þetta er spennó færsla hjá mér....Paris Hilton og dautt jólatré!!!!!
Jámm ég varaði ykkur við að þetta færi svona......

Skemmtilegt að segja frá því að ég fjárfesti mér í nýjum síma....það var svo ansi mikið farið að fara í taugarnar á fólkinu mínu hvað gamli síminn var lélegur....heyrðist lítið....skruðningar...ooooog margt fleira.....en nú er maður sko móðins komin með nokia eitthvað...man ekkert hvað hann heitir...

en jæja þetta er held ég komið gott að rausi og röfli...

elskið friðinn og strjúkið kviðinn...